hello..!
Hæ elskurnar mínar
|
nýtt blogg....
Ja það er kannski tími á smá blogg ? Svo að maður sé ekki með saur á milli tannanna endalaust.....!Skólinn er kominn á fullt og ég er að fara í miðannar próf á föst. Verð að standa mig þar.Síðan Hrafnhildur fór þá var planið að hætta að djamma í óákveðinn tima en það hefur ekki gerst nema um þessa helgi þá var ég voða róleg fór með Hörpu systir á eldsmiðjuna á föst og fór svo í bíó á hairspray hún var fín alveg ágætis afþreying, aftur á móti er Harpa að fíla hana í tætlur enda í annað skipt sem hún sá hana, í gær fór ég til Helgu og horfði á video einhverja sænska/ danska drauga mynd.... svo það var ekki mikið um djamm. Nei ætla taka skólann smá alvarlega núna svo planið mitt um næsta vetur gangi upp... Vá hlakka ekkert smá til....góð tilbreyting það...Já í síðustu viku fór ég i ofnæmis próf og þá kom í ljós að ég hef ofnæmi fyrir kisum og ryki og frjókornum uss gaman hjá mér ... þar sem ég verð með ofnæmi allan ársins hring , þar sem er nó af ryki í mínu æðislega herbergi og svo á ég líka þennan sæta-feita kött.... En það er ekki séns að maður losa sig við hana, hún á allan rétt að vera hér.... allavega fannst mér voða leiðinlegt að þurfa að fara með hamsturinn minn í svæfingu fyrir 6-7 árum og það er bara mús......ojj hvað ég man þetta hún var búin að vera e-ð veik í einhvern tima og hafði horast upp og var bara orðinn að beina grind ég var búin að reyna gefa henni að borða en hún virtist aldrei snerta á neinu, svo ég fór með hana til læknis og hún vissi ekkert hvað var að henni svo var bara tekinn ákvörðun um að lóa henni.... ég man þegar ég labbaði út og inn í bíl til mömmu, ég fékk hana í kassa og þegar ég opnaði kassann þá var hún ennþá heitt og svo byrjaði hún að kólna og harðna og það var ekkert voða gaman að sjá dýrið sitt svona... Svo var bara farið í garðinn og hún var jörðuð þar músin litla...! ![]() |
Með smá saur á milli tannanna ....!
Já þetta kemur náttúrulega ekki fyrir neinn nema þessa ætt/fölskyldu ...! þetta er bráð fyndið en algjörlega viðbjóðslegt.... eftir góða grillaða steik með sætum kartöflum var ekkert annað eftir en að fá sér fjallabláber sem pabbi og bróðir hans tíndu af kappi ásamt því að skjóta gæsir. Svo þegar berin voru komin í skál og búið að ,,hreinsa” þau. Rjóminn og sykurinn af góðu magni svo ekkert gat klikkað, nema þetta....! eftir fyrstu skeið af fullkomnun var ekkert annað en að stynga skeið nr.2 upp í sig.
Því miður varð hún ekki eins fullkomin og hin þar sem eitt berið var e-ð svo djöfull seigt og ekki til neins að reyna einu sinni að tyggja það, svo ég hoppa fram og inn í stofu og segi að það séu lambaspörð í berjunum, þau e-ð í alvöru og pabbi tekur berið í sundur sem var ennþá heilt og þá var þetta náttúrulega ekki ber heldur já lamba eða kindasparð. Það er náttúrulega ekki annað hægt en að hlæja sig máttlausan af því... þá hafa bræðurnir verið í svo mikilli keppni sín á milli, til að fylla föturnar og ekki hugsað þegar berjatínunum var sveiflað upp fjallið og tekinn einn kúkur með heheh
Svo ef ykkur langar i ber og það er e-ð seigt ekki tyggja það :D hahh

góð bláber :D haa

það er engin munur á þessu :D ahh
kem með smá slúður þótt ég sé ekki góð í því

paris að kaupa nýjan hund ....þau eru nú bara svolitið lík :)

þetta er rassinn a j-Lo ekkert æði ha...! ekki í þessum buxum


Britney Spears er orðinn svooo sjúskuð að það er ekki fyndið... sjáið á henni rassinn það er bara appó ......

Victoria Beckham .....

....

hvað er hún samt að pæla að vera í þessum ljóta kjól...!?
Maður fattar ekki hvað maður hefur það gott fyrr en maður verður mikið veikur..!
Já ég get ekki sagt að þetta sumar sé eins og ég ímyndaði mér það, er búin að vera veik meiri hlutan af því, og ekkert lítið líka.
Ég byrjaði á því í sumar byrjun að finna fyrir ,,ofnæmi,, að ég held og fer að taka pillur og nefsprey, svo fer ég á hróa og þá versnar þetta kvef og ég fæ þvílíkan hósta og slor þegar ég kem heim er ég hálf tussuleg og fer og fæ penselín er á því í 5 daga,þegar einn dagur er eftir á kúrnum eða núna á föstudaginn sem leið, þá vakna ég með útbrot á maganum og alveg klessu undir vinstra brjósti þar sem ég var búin að drepast í viku,
Þetta var annar dagurinn minn i vinnu eftir hróa. Ég mætti og var að vinna úti svo fæ ég að fara til læknis i hádeginu og hún sendir mig i lungna rönken, hún segir að útbrotin séu örugglega af penselíninu og ég eigi ekki að taka meira af því og útbrotin muni fara eftir viku eg fer heim og er svo slöpp að eg leggst bara upp í rúm og mæli mig, hitinn hækar sem líður á kvöldið. Mamma og pabbi voru að fara í 50 ára afmæli hjá nágrannanum sem er læknir og hann á fullt af læknavinum, um 11 leitið var hitin komin i 40,6 stig og útbrotin voru búin að drefast um allan líkaman og voru að drepa mig,
klæjaði í allstaðar og þori ekki að taka íbófen svo eg sendi Hörpu yfir og mamma kom með einn lækni yfir og hann skoðaði mig, og hringdi og pantaði lyf fyrir mig og eg þorði ekki að taka það en gerði það samt, ég fór að sofa og vaknaði með 40 stiga hita og seinna um daginn hringdi mamma i ofnæmislækni sem ser um systur minar og hún ráðlagði okkur að kaupa einhver steralyf. Ég fékk þetta en þetta batnaði ekki svo mamma náði í nágrannan og hann kom og sagði : úff að sá þig greyið þetta er bara með því versta sem maður sér hann skoðaði mig e-ð og sagð ef þetta vesnaði ætti ég að fara upp á bráðamótöku hann hefði sent mig ef eg hefði ekki verið búin að taka stera pillurnar því að upp á deild mundu þeir gefa mér steralyf beint í æð og e-ð meir....
En þar sem ég er komin með fjólubláa bletti í rauðu útbrotinn min lítur þetta mjö illa út eini staður inn sem sérst í minn húðlit er andlitið smá hluti af puttunum mínum og tásunum og smá af ristinni annars er eg rauð út um allt og fjólublá undir höndum,á bakinu og maga og lærin eða það má segja að ég sé fjólublá alls staðar líka. Held samt að þetta fjólubláa sé útaf því að eg er búin að klóra mér svo mikið að ég sé að gera sár inní húðinni og blóðið komist ekki út. Því miður verð ég frá vinnu e-ð og eg er að verða biluð á þessu ástandi finnst þessi helgi búin að vera heil eilífð. Langar að setja inn mynd en held að þið mínir fáu lesendur mynduð æla.
Blautasta kelda ever

Þrátt fyrir blautan Hróa og vosbúð var keldan mjög skemmtileg.Við fengum gott veður fyrsta daginn i Köben,Við fórum upp á svæði 1. á sunnudeginum vorum komin um miðnætti svo biðum við i röð i 4 tima eða svo það var ömó við vorum öll svo þreytt og eingin nennti að tala eða neitt svo við hengjum bara í massa troðning, svo um sex leitið þá var brotist inn á svæðið og þá var komin geðveik þoka svo við ráfuðum um eins og blindir hamstrar en að lokum komum við á staðinn sem við vildum vera á enda líka besti staðurinn, einn af fáum sem fór ekki í kaf af drullu, við fengum frábæra camp félaga sem eru norðmenn, einn af þeim var augna yndi hehe :DVeðrið var bara svona lala fyrst og svo kom lika þessi massa rigning það var eingin regnföt sem héldu þessu i burtu. Eg var i föðurlandinu, vindbuxum og regnbuxum,ullarpeysu,peysu, og regnstakk ég var blaut i gegnum allan pakkann, það var viðbjóður en setti svip á hátiðinna, eftir fimmtudaginn mikla þá ringdi e-ð smá en þá var svæði líka ónýtt það ringdi yfir 60 mm sem er brjálað mikið. yfir einn sumar mánuð í danmörku þá er það um 100 mm en þetta var á einum og hálfumm degi. En það er gaman að geta sagt að maður lifði þetta af :D og ekki farið heim , í roskilde-festival blaðinnu stóð að það hefði verið einhverir Islendingar sem hefðu hlaupið um svæðið og sagst vilja deygja eða væru að deyja! einhverjir aumingjar þar á ferð.Yfir hátiðinna þá sá ég þessa tónleika:Arcade fire,The Killers ,Björk,Beastie boys,Css,Queens of the stone age,Peter bjorn and john,Nephew,The whitis boy alive,The who ,Red hot chili peppers,The flaming lips,Arctic monkeys,Pelican,Muse ,Basement jaxx. Mis góðir samt en ótrúlega gaman :D


svo eru fleiri myndir inná myspaceinu minu :D

http://www.myspace.com/huldakrulla
það styttist
Danmerkur för nálgast,við förum þrjú saman út ég,Sindri og Stebbi byrjum í köben og verðum þar i 2 daga svo er bara farið á hróa svæðið 1 júlí hittum krakkana og tjöldum. Anna og Reynir koma svo 4. það verður gott að fá þau :D bjórinn á eftir flæða
og ég get varla beðið, það er samt svo mikið að gera hjá mér þessa daganna að ég þarf ekkert að bíða..eða svoleiðis.. Að vera flokkstjóri er bara fint, hvað er málið með krakka og vera latir.. það er ekki fyndið, þau eru að deyja eftir klukkutíma vinnu og þá eru þau búin að spyrja hvað klukkan er á svona 5 mín.. fresti....!
Eftir að ég kem heim frá Hróa ..! þá styttist í ferð til Noregs aftur, okkur var boðið í brúðkaup í Noregi sem verður æði, Hún Inga frænka er að fara gifta sig til lukku með það :D já ég hef aldrei farið svona oft út á einu ári og það verður jafnvel ein ferð í viðbót en það er ekki ákveðið það væri samt voða gaman að geta farið í þá ferð.





